Forsíða
Velkomin á heimasíðu Íslensku brjóstagjafasamtakanna

Hér á síðunni er að finna ýmsan fróðleik um brjóstagjöf og hægt er að fá aðstoð frá stuðningskonum.

Þér er velkomið að hringja í stuðningskonu, senda okkur fyrirspurn á vefpósti og við leggjum okkur fram um að svara svo fljótt sem auðið er.

Stuðningskonur Íslensku brjóstagjafasamtakanna eru allar sjálfboðaliðar. Þær vita af eigin reynslu að brjóstagjöf er ekki alltaf leikur einn. Reynsla þeirra getur nýst til þess að hjálpa öðrum konum.

Allar stuðningskonur hafa haft börn sín á brjósti og hafa undirgengist próf og þjálfun á vegum samtakanna.

 

Síðan er enn í vinnslu og við bætum efni inn jafnóðum og það berst. Nýttu þér það sem er að finna á síðunni en endilega kíktu aftur fljótlega því þá verðum við búnar að setja inn enn meira af gagnlegum og góðum upplýsingum um brjóstagjöf og allt sem tengist henni.

 

Takk fyrir að leita til okkar