|
Íslensku brjóstagjafasamtökin voru stofnuð árið 2008 af Aðalheiði Altadóttur, Dagnýju Ósk Ásgeirsdóttur og Soffíu Bæringsdóttur.
Markmið samtakanna er að vernda, styðja við og hlúa að brjóstagjöf og veita áreiðanlegar upplýsingar um allt sem tengist brjóstagjöf. Meðal annars með því að halda úti vefsíðu og með tímanum gefa út fréttabréf.
Íslensku brjóstagjafasamtökin sjá um alþjóðlegu brjóstagjafavikuna ár hvert, halda utan um stuðningskonur og halda námskeið um brjóstagjöf.
Það er okkar von að Íslensku brjóstagjafasamtökin vaxi og dafni um ókomna tíð og verði öflugur málsvari fyrir málefni tengd brjóstagjöf. Við erum með ýmislegt á döfinni.
Upphafið að stuðningskonum
Hugmyndin á bakvið stuðningskonur hafði bærst innra með nokkrum konum sem hafa mikinn áhuga á brjóstagjöf í nokkurn tíma. Þær leiddu svo saman hesta sína haustið 2009 og mynduðu vinnuhóp.
Dagný Ósk Ásgeirsdóttir, Eva Valsdóttir, Ingibjörg Baldursdóttir, Soffía Bæringsdóttir og Sólveig Reynisdóttir með dyggum stuðningi frá Guðrúnu Guðmundsdóttur fóru í það að kynna sér starfsemi nágrannalandanna, móta hugmyndir og útfærslu sem gæfi góða raun á Íslandi og öfluðu, þýddu og skrifuðu efni sem lagt er til grundvallar námsefninu.
Eftir ófáa kaffibolla, mikla vinnu og nokkrar andvökunætur var verkefnið að verða að veruleika. Í apríl 2010 var svo fyrsta námskeið stuðningskvenna haldið. Auk upphafsmanna sátu sex öflugar konur námskeiðið og útskrifuðust sem stuðningskonur. Samtökin voru svo formlega sett í loftið 28. apríl 2010 og heimasíða félagsins gerð opinber.
Óhætt er að segja að áhuginn hafi verið mikill og viðbrögð góð. Strax á fyrstu vikunni hafa okkur borist nokkrar fyrirspurnir og nokkuð víst að þær verða fleiri. Það er okkar ósk að stuðningskonur festi sig í sessi og verði órjúfanlegur þáttur í lífi mæðra.
|