Forsíða Um samtökin Fjarnámskeið
Hægt er að gerast stuðningskona í gegnum fjarnám Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Svona virkar það;

þú skráir þig á studningskona [at] brjostagjafasamtokin.org, borgar námskeiðsgjald og færð sent námsefni um hæl. Þér er úthlutaður leiðbeinandi sem verður þér innan handar allt námskeiðið og fyrsta árið eftir að þú útskrifast.

 

Þú mátt gera verkefnin og prófin upp á eigin spýtur eða taka þátt í leshring og leysa verkefnin í samvinnu við aðra (hver og einn sendir inn lausnir). Þú ræður hvort þú handskrifar þau eða skilar þeim inn á tölvuformi. Þú tekur þér þann tíma sem þú þarft til að klára verkefnin.

Lausnir þínar og verkefni eru svo yfirfarin af reyndri stuðningskonu. Hún er þér innan handar meðan þú klárar verkefnin og er þér innan handar allt þitt fyrsta ár sem stuðningskona. Það er alls ekki ætlunin að þú vitir allt um brjóstagjöf eftir að hafa staðist próf frá Íslensku brjóstagjafasamtökunum. Við vitum að reynslan af því að vinna sem stuðningskona er sú allra mikilvægasta. Með tímanum byggir kona upp góða kunnáttu og býr yfir góðri reynslu.

 

Þegar ljóst er að þú hefur staðist gerðar kröfur færðu verkefnin til baka með athugasemdum og skírteini frá Brjóstagjafasamtökunum til staðfestingar. Upp frá því getur þú kallað þig stuðningskonu og mátt starfa sem slík.

 

Stuðningskonur eru sjálfboðaliðar og því er ekki sérstakt símanúmer. Stuðningskonur setja sitt númer í símabókina, sem birt er á netinu. Þegar þú ert komin með skírteini í hendurnar er nafn þitt og símanúmer sett á heimasíðuna og þú getur líka gefið upp msn og/eða netfang. Stuðningskonur geta líka séð um stuðningshópa.

Þar sem að við gefum út skírteini biðjum við þig að senda mynd af þér rafrænt um leið og þú sendir inn lokaverkefnin. Mynd sendist á studningskona [at] brjostagjafasamtokin.org

Sem stuðningskona aðstoðar þú konur á jafningjagrundvelli í gegnum síma, vefpóst eða spjall, allt eftir því hvað þú hefur áhuga á að gera og hefur tíma til.

Spjallhittingar stuðningskvenna eru svo einu sinni í mánuði í Reykjavík og boðið er uppá endurmenntun reglulega. Þið fáið aðgang að innra neti með góðum upplýsingum.

Þátttökugjald 6500.- Nánari upplýsingar á studningskona [at] brjostagjafasamtokin.org

Takk fyrir að taka þátt og efla starfsemi stuðningskvenna.