|
Upplýsingar um stuðningskonur
Hvað gerir stuðningskona?
Stuðningskona veitir persónulega ráðgjöf og stuðning á jafningjagrundvelli í flestu sem viðkemur brjóstagjöf. Þegar leitað er eftir ráðum og stuðningi til Stuðningskonu brjóstagjafasamtakanna leitast hún við að veita upplýsingar og gefa ráð sem koma persónulega að gagni. Hægt er að hringja í stuðningskonu hvenær sem er dags eða senda vefpóst. Svar við vefspurningum eiga að hafa borist innan 30 klukkustunda.
Stuðningskonur eru mæður sem haft hafa börn sín á brjósti og undirgengist próf og þjálfun á vegum Íslensku brjóstagjafasamtakanna. Stuðningskona reynir að svara spurningum tengdum brjóstagjöf en veitir aldrei ráðgjöf um læknisfræðileg atriði. Einn styrkleiki stuðningskvenna er að vita hvenær þarf að vísa málum áfram til sérfræðinga.
Verkefnið stuðningskonur er unnið að fyrirmynd frá Norðurlöndunum Ammehjelp í Noregi og Amningshjalp í Svíþjóð.
Stuðningshópar
Stuðningskonur geta líka séð um stuðningshópa í sínu hverfi. Þá bjóða stuðningskonur öðrum mæðrum úr hverfinu á reglulega hittinga þar sem mæðrum gefst tækifæri til þess að ræða brjóstagjöf og allt sem henni viðkemur á jafningjagrundvelli, deila og miðla sinni reynslu. Ráðgert er að fara af stað með stuðningshópa haustið 2010.
Hvað kostar að leita til stuðningskonu?
Aðstoð stuðningskonu er gjaldfrjáls fyrir utan kostnaðinn sem þú berð við að hringja. Teljir þú þig hafa haft ávinning af því að leita til stuðningskonu hvetjum við þig eindregið til þess að leggja samtökunum lið á einn eða annan hátt. Þannig getum við tryggt að samtökin vaxi og dafni, útgáfa eflist, að stuðningskonum fjölgi og að við getum gefið út bæklinga og bækur um brjóstagjöf. Hægt er að kaupa barmmerki eða bol af samtökunum, gerast virkur félagi. Endilega hafðu samband á fyrirspurn [at] brjostagjafasamtokin.org ef þú hefur áhuga á að leggja okkur lið.
Siðareglur/starfsreglur stuðningskvenna.
Siða- og starfsreglur stuðningskvenna eru okkur mikilvægar. Þær sjá til þess að við missum ekki sjónar á tilgangi okkar. Stuðningskona reynir aldrei að tala um fyrir móður eða fá hana til að gera eitthvað sem hún hefur ekki áhuga á.
- Stuðningskona vinnur að því að styðja og vernda brjóstagjöf. Mæður geta leitað til stuðningskonu eftir stuðningi og ráðum varðandi brjóstagjöf svo lengi sem þær kjósa.
- Stuðningskona gefur ekki læknisfræðileg ráð, né heldur ráð um barnauppeldi.
- Stuðningskona er bundin þagnareið og virðir rétt einstaklingsins til trúnaðar í hvívetna. Hún segir ekki frá því sem henni er trúað fyrir. Undantekningar eru frá þagnarskyldunni ef augljós hætta stafar að og ef lög krefjast.
- Stuðningskona er óháð og getur aldrei verið talsmaður eða starfsmaður fyrirtækis sem sérhæfir sig í framleiðslu og/eða dreifingu barnamats og/eða staðgengilsvöru fyrir móðurmjólk.
Að gerast stuðningskona
Til þess að gerast Stuðningskona Íslensku brjóstagjafasamtakanna þarftu að vera virkur félagi, hafa haft barn á brjósti og standa skil á verkefnum og prófi. Þú lest lesefni frá Íslensku brjóstagjafasamtökunum, auk ítarefnis sem þau leggja til. Að því loknu gerir þú verkefni og próf og skilar inn til leiðbeinandans þíns.
Þú mátt gera verkefnin og prófin upp á eigin spýtur eða taka þátt í leshring og leysa verkefnin í samvinnu við aðra (hver og einn sendir inn lausnir). Þú ræður hvort þú handskrifar þau eða skilar þeim inn á tölvuformi.
Lausnir þínar og verkefni eru svo yfirfarin af reyndri stuðningskonu. Hún er þér innan handar meðan þú klárar verkefnin og er þér innan handar allt þitt fyrsta ár sem stuðningskona. Það er alls ekki ætlunin að þú vitir allt um brjóstagjöf eftir að hafa staðist próf frá Íslensku brjóstagjafasamtökunum. Við vitum að reynslan af því að vinna sem stuðningskona er sú allra mikilvægasta. Með tímanum byggir kona upp góða kunnáttu og býr yfir góðri reynslu.
Þegar ljóst er að þú hefur staðist gerðar kröfur færðu verkefnin til baka með athugasemdum og skírteini frá Brjóstagjafasamtökunum til staðfestingar. Upp frá því getur þú kallað þig stuðningskonu og mátt starfa sem slík.
Stuðningskonur eru sjálfboðaliðar og því er ekki sérstakt símanúmer. Stuðningskonur setja sitt númer í símabókina, sem birt er á netinu. Þegar þú ert komin með skírteini í hendurnar er nafn þitt og símanúmer sett á heimasíðuna og þú getur líka gefið upp msn og/eða netfang.
Þar sem að við gefum út skírteini biðjum við þig að senda mynd af þér rafrænt um leið og þú sendir inn lokaverkefnin. Mynd sendist á studningskona [at] brjostagjafasamtokin.org
Sem stuðningskona aðstoðar þú konur á jafningjagrundvelli í gegnum síma, vefpóst eða spjall, allt eftir því hvað þú hefur áhuga á að gera og hefur tíma til.
Allar fyrirspurnir sendist á studningskona [at] brjostagjafasamtokin.org
|